Það er bara búið að vera nóg að gera hjá manni síðasliðnar vikur......byrjuð að vinna aftur, mjög gaman að vera komin aftur í Bianco erum komin með myspace: www.myspace.com/biancofootwear endilega kíkiði á síðuna og addið okkir ef þið eruð með myspace
Margréti gengur svaka vel hjá dagmömmu....alltaf svaka fjör á henni þegar við náum í hana Er byrjuð að sitja alveg sjálf og mjög stutt að hún byrji í að skríða Var að setja inn nýjar myndir af henni á barnalandið
kem með betri færslu fljótlega
untill then..
begs
» 1 hafa sagt sína skoðun
Það er búið að vera svo mikið að gerast og að gera hjá manni síðasta mánuð að ég hef bara ekki haft tíma í að blogga...bæti það upp núna.
NYC var náttúrulega bara hrein snilld, ofboðslega flott borg Hefði ekkert á móti því að fara þangað aftur Það var mikið skoðað og verslað og notið þess að vera í fríi og 2 saman Gott að komast aðeins í burtu...ekki veitti af eftir erfiða viku á undan. Mér fannst samt alveg verst að vera úti vegna þess að ég missti af kistulagningunni og jarðaförinni hjá Eika. Vildi rosalega vera þar...vantaði held ég bara að vera þar. Mér finnst þetta enþá svo óraunverulegt eitthvað, hvað þetta getur gerst svona snöggt, en maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Kittý er búin að standa sig eins og hetja í gegnum þennan erfiða tíma enda var þetta mikill missir. Benedikt Gylfi er orðinn svo stór og sætur!! Hann á eftir að verða alveg eins og pabbi sinn held ég
Margeir leynir oft á sér Við vorum frá þriðjudegi til sunnudags í NY og á fimmtudeginum þegar við vöknum og erum að gera okkur til í að fara út...ætli kallinn hafi ekki verðið búinn að kaupa miða á JUSTIN TIMBERLAKE tónleika í Madison Squere Garden um kvöldið!! Hann er svo sætur í sér!!! Alveg hvað ég var ánægð....við erum að tala um Justin Timberlake!! Og auðvitað voru tónleikarnir alveg sá bestu sem ég hef farið á!! Ótrúlega hæfileikaríkur maður þarna á ferð!! Sjúklega góður dansari...vissi ekki að það væri hægt að vera svona góður að dansa!! Svo bara showið í heildina.....klapp klapp klapp!!!
Við kíktum í Trump Tower auðvitað Komum þar inn í andyrið...ég labbaði áfram og ætlaði að kíkja á hæðina fyrir ofan....Margeir stoppaði og fór að taka myndir af einhverjum köllum að tala saman.....ætli að það hafi bara ekki verið sjálfur aðalmaðurinn með þetta stóra nafn, Mr Donald Trump!!!! Fyndið eitthvað....sáum hann aðeins smelltum 2 myndum af kallinum og fórum svo bara Trump Tower ekkert smá flott bygging og bara bónus að sjá aðalmanninn líka hehehe
Margrét Lilja er orðin svo stór...ekkert smá hvað tíminn er fljótur að líða!! Hún er orðin 7 mánaða!! Byrjuð að sitja sjálf, komin með 2 tennur í neðri góm, stutt í að hún byrji að skríða.....veltir sér allavega út um allt! hún er svo sæt!! Byrjaði hjá dagmömmu í síðustu viku og það gengur bara mjög vel Ég byrjaði að vinna í síðustu viku Ofsalega gott að vera byrjuð aftur Sakna þess samt að vera heima með Margréti allan daginn....en maður verður að vinna sér inn pening og komast aðeins út bara Höfum báðar gott af því
Keyptum okkur nýjan bíl í fyrradag Það var bara ekki að gera sig að vera á einum bíl!! ekkert nema vesen...þannig að við fjárfestum í þessum fína VW POLO það var eitthvað tilboð hjá Heklu, Polo með sumar og vetrardekkjum og HP fartölva og svaka fínu verði og við skelltum okkur bara á þetta og ég er mjög ánægð með nýja fína bílinn minn (margeir fékk tölvuna)
Ég held að ég fari að láta þetta vera nóg í bili......
Adjö
Begga og Margrét Lilja
» 7 hafa sagt sína skoðun
Til Eika,
Þú varst frábær strákur með stórt og gott hjarta.
Núna lítur þú yfir Kittý og Benedikt Gylfa sem verndarengill þeirra.
Hvíl í friði
Begga
» 3 hafa sagt sína skoðun
Það eru komnar helling af nýju myndum af litlu sætu skvísunni inná barnalandsíðunni hennar Endilega kíkiði á skvísuna, sendið mail ef ykkur vantar lykilorð.
Allt gott að frétta af okkur Erum ekki með internet þannig að við komumst sjaldan á netið En byrja að blogga aftur í haust
Hafiði það gott í bili
» 2 hafa sagt sína skoðun
Smá update:
**Bæ Bæ Akureyri, búslóðin komin í bæinn!! Takk fyrir mig!!
**Allt komið inn í Birkiholtið nema við...þarf að mála og þrífa. Sem verður klárað um helgina.
** Flytjum inn á mánudag/þriðjudag...loksins loksins!
**Ég og Margeir erum að fara til NEW YORK í ágúst!! ofsa kát með það!! Verðum í 5 daga, verður mikið mikið verslað og skoðað!! Margrét Lilja verður í pössun hjá ömmu og afa á Akranesi
**Við litla fjölskylda erum bara ofsa kát og hamingjusöm öll
**Hætt að blogga í bili....nóg að gera eins og er.....
**....hafiði það gott í sumar!!
sumarknús
Begga og Margrét Lilja.
» 4 hafa sagt sína skoðun
HAPPY BIRTHDAY TO ME
tuttuguogþriggjaára í dag
oh boy, i´m getting old!! hehe
Takk takk
Mikið að gerast í dag, kjósa, horfa á júróvision, horfa á kosningasjónvarpið, fara niðrí bæ og tjékka á Risessunni og pabba hennar...langar mikið mikið að sjá þetta--kemst bara ekki þar sem litla skotta er sofandi úti í vaginum og það er enginn heima til að líta eftir henni á meðan En ég sé þetta bara í fréttunum í kvöld Sá smá brot í gær---OMG hvað hún var mannaleg!! Þvílíkt mannalegar hreyfingar...fékk smá hroll þegar ég sá Risessuna í sjónvarpinu í gær, pæliði í því ef það væru til Risar....ég veit ekki hvar ég væri þá.. en þetta er list er þaggi??
Ég fór á Óliver í gær að hitta Bibburnar mínar, ekkert smá gott að komast aðeins út!! Margeir var heima með Margréti Lilju á meðan...gekk ágætlega...ég gat verið í 2 tíma Byrja bara rólega á þessu...næst verð ég í 3 tíma og svo framvegis Bibburnar voru svo sætar eins og þær eru alltaf, rosa gaman að hitta ykkur elskurnar mínar Vona að við gerum þetta fljótlega aftur!! Var vel farin að sakna þessa að fara á kaffihús
Loksins loksins erum við litla fjölskylda komin með íbúð!! Adda frænka á íbúð í Birkiholtinu hérna á Álftanesinu og hún er að losna núna í maí og við ákváðum að kýla á þetta bara Enda er svo gott að búa hérna Þannig að við fáum íbúðina núna í endan maí!! Er svo kát að fá þessa íbúð, alveg í skýjunum...takk Adda mín
Erum að fara í Júró/kosniga/grillpartý hjá Þrúðu og Atla á eftir Mjög langt síðan við hittumst öll ásamt Lindu og Óla verður ofsa gaman hjá okkur, mikið að spjalla og slúðra og svona
Verð að fara drífa mig í sturtu og laga aðeins til fyrir múttu áður en skottan vaknar!!
Gleðilegan kosninga-og júróvision dag!!
Þá er kominn Maí sko aðalmánuðurinn!! Júróvision og kosningar eftir 11 daga, pabbi á afmæli eftir 6 daga og ég á afmæli eftir 17 daga. Það er verður nóg að gera í maí enda er þetta svo skemmtilegur mánuður
Við erum búin að hafa það voða gott síðan við fluttum í bæinn aftur Reyndar dáldið þröngt um okkur 3 í litlu herbergi hjá mömmu og pabba en maður verður bara að hafa það, vona svo innilega að það fari eitthvað að losna hjá BN, erum á biðlista eftir íbúð þar..bara krossa fingurnar og bíða
Við fórum með Margréti Lilju í gær í skoðun, hún var vigtuð og mæld og fékk svo sína fyrstu sprautu Ég hélt að sprautan yrði svaka mál, var svo kvíðin fyrir hennar hönd! Margeir sat hjá henni því ég gat ekki horft!! En hún var svo DUGLEG heyrðist ekkert í henni!! Bara hjalaði á meðan Ég ekkert smá stolt af skvísunni minni Allt kom vel út í skoðuninni eins hefur alltaf gert
Margrét Lilja var að vakna, var úti í vagninum
Untill next time,
» 0 hafa sagt sína skoðun
....svo kemur sunnudagur og svo mánudagur..og þá leggjum við af stað suður!! vei vei vei Við erum búin að vera pakka á fullu, nánast allt komið niður í kassa Fór yfir fataskápinn minn í gær, ekki vissi ég að ég ætti svona mikið af fötum!! Hef auðvitað ekki notað þessi föt í 9 mánuði!! Og get ekki beðið eftir að fara nota þau aftur....sumar gallabuxurnar þurfa að bíða aðeins með þar sem maður er ekki komin alveg í sama far og ég var áður en ég varð ólétt en það er mjög stutt í það hehe
Theó sæta er að fara koma norður á morgun, verður hjá familíunni sinni yfir páskanna, en hún ætlar að vera svo sæt og koma í heimsókn og klippa mig kominn tími til líka.....mjög langt síðan ég fór í klippingu síðast!! Hlakka til að hressa aðeins upp á lokkanna
Ég eignaðist lítinn frænda í gær hann er ekkert smá sætur, til hamingju elsku Adda mín og Marel
Margrét Lilja er alltaf jafn hress og sæt Kemur okkur alltaf á óvart á hverjum degi Ótrúlegt hvað hún er fljót að læra byrjuð að brosa breitt og hjala á fullu alveg Hún er alveg yndisleg
Verð að hætta núna.....hlakka til að sjá alla í næstu viku!!!
Adjö!!
Ég er svo ánægð núna!! Margeir fékk bréf frá HR í pósti á föstudaginn og þar stóð að hann hefði verið metinn inn í HR!!! Allt var metið sem hann er búinn með hérna á Akureyri...og það þýðir að við erum að flytja aftur í bæinn!!!! Erum að koma í bæinn eftir eina viku!!! Hlakka ekkert smá til sko!! Núna er það bara að finna okkur íbúð til að leigja!!! Þannig að ef þið vitið um einhverja íbúð sem vantar leigjanda endilega commentið!! Það er allt fullt í stúdendtagörðum HR:/ þannig að endilega ef þið heyri eitthvað, ekki hika við að commenta!!
Verð að hætta, Margrét er orðin svöng!!
Sjáumst eftir viku!!!
» 5 hafa sagt sína skoðun
Allt gott að frétta héðan af Akureyrinni. Veðrið er búið að vera mjög spes....annað hvort þvílík snjókoma að maður sjái ekki út, slydda, sól, logn, frost og svo framvegis. Það var mjög fallegt veður í dag....sól og logn.
Við litla fjölskylda fórum á bílasölurúnt í dag, mér finnst það alltaf svo gaman Sáum ofboðslega flottan Toyota Rav4, kóngablár. Prufukeyrðum hann og leist allsvakalega vel á hann, ætlum aðeins að sjá til.....við erum ekki alveg þau ríkustu í heiminum en það er allt í lagi að láti sig dreyma
Svo styttist í að við komum suður, 2 og hálf vika í það Hlakka rosalega til, svo er skírnin eftir ca 4 vikur allt að gerast hjá okkur
En jæja...hef þetta ekki lengra í bili, þvottvélin bíður
Vorum að setja nýjar myndir inná barnaland
Mikið ofsalega er ég búin að vera löt að drita niður einhverjum orðum hérna!! Búið að vera nóg að gera með prinsessuna mína og svona!!
Við vorum semsagt í bænum síðustu helgi.....náði að hitta flesta sem ég náði ekki að hitta síðast, fór í smáralindina og verslaði smá Kíkti í BIANCO og fékk mér RAUÐA skó Fyrstu rauðu skórnir mínir Sá þegar ég var í Bianco hvað ég er farin að sakna þess að vinna....en það er alveg yndislegt að eyða deginum með prinsessunni minni! Alltaf fjör hjá okkur...hún er líka svo fljót að stækka, byrjuð að brosa og hjala. Það er ekkert smá sætt
Svo á að skíra um páskanna á skírdag Margeir var flottur á því og bókaði Hallgrímskirkju!! Alveg ótrúlegur!! en hún verður bara að fá það besta og flottasta, þýðir ekkert annað!!
Margrét Lilja er orðin svöng.....næ því ekki að hafa þetta lengra í bili.......
kveðjur að norðan!!
Litla sæta stelpan mín á eins mánaðar afmæli í dag Er varla að fatta að það sé heill mánuður síðan hún fæddist....mér finnst eins og það hafi gerst í gær!!
En allt gott að frétta af okkur hérna á Akureyri....veðrið er fínt, Margeir á fullu í skólanum og ég á fullu í mömmó og svona Fór með Margréti Lilju í fyrsta skiptið út að labba í fína vagninum. Það gekk alveg svakalega vel...stelpan steinsofnaði áður en ég fór útút íbúðinni!! hehehe Tókum samt bara stuttan göngutúr....en vá hvað það var gott að komast út!!! Þannig að það er bara göngutúr á hverjum degi núna...nema að það sé mjög kalt...þá heldur maður sé bara inni
Við erum kannski að koma suður í næstu viku!! vei vei vei!! Verðum bara stutt...yfir helgi, þannig að ég vona að við náum að hitta þá sem við náðum ekki að hitta síðast þegar við vorum í bænum....
En jæja....þarf að fara taka kjúlla úr ofninum
» 6 hafa sagt sína skoðun